Persónuvernd

Persónuverndarstefna

Þessi stefna útskýrir í einföldu máli hvernig Fjárbók meðhöndlar persónuupplýsingar þínar.

01

Hvaða gögn eru notuð

Fjárbók notar Google reikninginn þinn til innskráningar. Appið fær aðgang að nafni, netfangi og Google aðgangslykli meðan þú ert skráð/ur inn, svo hægt sé að stofna, opna og uppfæra Google Sheets bókina þína.

02

Hvar gögnin vistast

Kindur, lömb, myndaslóðir, sauðburður og athugasemdir vistast í Google Sheets skjölum sem tengjast Google aðganginum þínum eða bók sem hefur verið deilt með þér. Ekkert er geymt á miðlægum þjóni Fjárbókar.

03

Myndir

Myndir sem þú hleður upp eru geymdar í Google Drive möppu sem tilheyrir Google reikningnum þínum. Fjárbók gerir myndirnar opinberlega aðgengilegar með hlekk til að þær birtist í appinu.

04

Spjall, ummæli og stuðningsmenn

Fjárbók notar Crisp fyrir stuðningsspjall. Nafn og netfang geta sendst til Crisp þegar þú ert skráð/ur inn. Umsagnir sem þú sendir (texti, stjörnur, nafn og netfang) eru geymdar í Google Sheets skjali í umsjón Fjárbókar og birtast aðeins eftir samþykki ritstjóra. Stuðningsmannalisti inniheldur eingöngu nafn og dagsetningu og er opinber á /supporters síðunni.

05

Hvað við gerum ekki

Við seljum ekki gögn úr Fjárbók. Við notum gögnin ekki í auglýsingaskyni og deilum þeim ekki með þriðju aðilum, nema Google Sheets og Crisp eins og lýst er hér að ofan.

06

Tölfræðigögn (sjálfvirkt)

Þegar þú opnar fjárbókina þína skráir kerfið sjálfkrafa fjölda lifandi kinda og nafn búsins. Þessi gögn eru geymd á þjóni Fjárbókar í umsjón þjónustureiknings og eingöngu notuð til að sýna samantektartölur á forsíðunni (fjölda kinda og fjölda búa). Engar persónulegar upplýsingar eru geymdar, aðeins nafn búsins og kindafjöldinn.

07

Geymsla og eyðing Google gagna

Google OAuth aðgangslyklar eru skammtímalyklar sem gilda meðan lotan er opin og eyðast við útskráningu eða þegar lotan rennur út. Endurnýjunarlyklar eru geymdir í öruggum HTTP-only kökum og má afturkalla hvenær sem er í stillingum Google reikningsins undir Öryggi → Aðgangur þriðju aðila. Búfjárgögn, svo sem kindur, lömb, myndir og athugasemdir, eru geymd í Google Sheets skjölum sem þú stjórnar og eru vistuð þar til þú eyðir þeim. Sjálfvirkt skráð tölfræðigögn, nafn búsins og kindafjöldi, eru geymd í allt að 2 ár nema þú biðjir um eyðingu í tölvupósti á fjarbok@fjarbok.is.

08

Öryggi og gagnavernd

Öll samskipti milli appsins og Google API eru dulkóðuð með TLS/HTTPS. OAuth aðgangslyklar eru aldrei geymdir á þjónum Fjárbókar; þeir eru eingöngu geymdir í dulkóðaðri HTTP-only lotuköku meðan þú ert skráð/ur inn. Persónuleg gögn sem þú skráir eru geymd beint á þjónum Google Sheets og lúta öryggisstefnu Google. Fjárbók geymir engar viðkvæmar persónuupplýsingar í eigin gagnagrunni.

Sjá einnig: Notkunarskilmálar

Síðast uppfært: 2026-05-21